Lausaganga hunda í hesthúsahverfum

  • 20. mars 2013
  • Fréttir
Lausaganga hunda í hesthúsahverfum

Flestir hestamenn hafa gaman af hundum og fylgir hundahald gjarnan hestamennsku. Enda er hundurinn kallaður besti vinurinn og er oft á tíðum góður félagsskapur.  Hundahald hefur aukist  undanfarin ár á landinu, en að halda hunda í borg er þó margt um ólíkt  því að eiga hund í sveit.  Þó að það sé leyniþráður milli manns hests og hunds  þá skiptir tillitsemi miklu máli gagnvart náunganum, þegar margir ólíkir hestar og reiðmenn eru komnir saman í hesthúsahverfi, þar sem oft á tíðum er mikil umferð bæði bíla og hesta. 

 
Mikil umræða hefur skapast um lausagöngu hunda í hesthúsahverfum og á reiðgötum.  Reglulega berast fregnir af fólki sem hefur lent illa í vandamálum vegna hunda sem birtast snögglega og valda því að hesturinn rýkur eða fælist, sem eru hans fyrstu viðbrögð sem flóttadýr frá náttúrunnar hendi.  Meira þó ef um er að ræða unga og lítið tamda hesta og getur valdið mikilli slysahættu. 
 
Lausaganga hunda er bönnuð í flestum hesthúsahverfum á Reykjavíkursvæðinu og hundaeigendur eru bótaskyldir ef hundur er orsakavaldur af slysi.  
Ítreka skal þá hættu sem hlýst af ekki bara fyrir reiðmanninn heldur hundeigandann sjálfan. Til dæmis ef að hundurinn er laus nálægt vettvangi slyss, þá getur réttur eigandans verið mjög bágur og hundurinn dæmdur slysavaldur.  Bæturnar sem eigandinn þarf þá að borga geta velt milljónum.
Stöndum saman og komum í veg fyrir slys.  Förum eftir settum reglum, því fleiri sem virða þær því auðveldar ganga hlutirnir fyrir sig og slysahætta verður minni. 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link