Leggur til bann við tunguboga
Velferðarnefnd Landssambands hestamannafélaga hefur ályktað um velferð hrossa í keppni- og sýningum að beiðni stjórnar LH. Nefndin hefur sent stjórn LH eftirfarandi ályktun og óskar eindregið eftir að ályktunin skili sér í formi tillagna frá stjórn LH fyrir næstkomandi aðalfund FEIF, þannig að tekið verði sameiginlega á þessum vanda á alþjóðlegum vetvangi.
Nefndin er einhuga um að núverandi ástand hvað varðar áverka þ.e. bæði í munni og ágrip á fótum á keppnis- og kynbótahrossum sé óviðunandi, út frá dýraverndunarsjónarmiðum. Finna þarf heildstæða lausn á vandanum þar sem allt er tekið með; keppnisfyrirkomulagið, umgjörð (vellir), túlkun dómsskallans og áherslur dómara ásamt eftirliti með áverkum, beislisbúnaði og járningum.
Sem fyrsta skref verði skerpt á fræðslu um málefnið á öllum sviðum (útbúnaðurinn, munnurinn, reiðmennskan) og kaflar úr rannsóknum birtir, þannig að hestamenn almennt séu meðvitaðir um hvað er að gerast þegar þeir taka í taum.
Öll mél með tunguboga verði bönnuð í allri keppni svo og kynbótasýningum tímabundið í tvö ár. Að þeim tíma loknum þurfa að koma til samanburðarrannsóknir.
Umrædd mél geta verið einjárnungur, einjárnungur með einum lið í miðju eða þrískipt mél með tunguboga. Þrískipt mél eru mél með bognum hliðarstykkjum sem taka tunguna úr leik og setja þrýsting á kjálkabeinið. Þá verði og gengið strangar eftir að öll hross séu áverkalaus og ósár fyrir og eftir sýningu, svo sem reglur og lög gera nú þegar ráð fyrir.
Það er eindregin ósk Velferðarnefndar LH, að þessi ályktun skili sér í formi tillagna frá stjórn LH fyrir næstkomandi aðalfund FEIF, þannig að tekið verði sameiginlega á þessum vanda á alþjóðlegum vetvangi.
Velferðarnefnd LH.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH