Liðakynning í KS deildinni
Þó að liðið sé nýtt í deildinni eru í því knapar sem hafa áður keppt í henni.
Liðsstjóri er Baldvin Ari Guðlaugsson löngu kunnur sem einn sigursælasti knapi Norðan heiða.
Með honum einnig búsettur á Akureyri er Guðmundur Karl Tryggvason sem er ávalt flugríðandi og mætir ætíð til leiks með eftirtektarverð hross.
Frá Björgum í Hörgárdal koma feðginin Viðar Bragason og Fanndís Viðarsdóttir.
Bæði tvö hafa náð frábærum árangri á síðustu árum og verður spennandi að sjá
þau spreyta sig í þessari sterku deild í vetur.
Síðastan en ekki sístan í þessu liði ber að nefna Hinrik Bragason. að fara mörgum orðum, einn allra hæfileikaríkasti knapi á Íslandi.Um Hinna er óþarfi
Það er okkur sem að deildinni stöndum sérstök ánægja að hafa vini okkar að Norðan með og bjóðum við þá velkomna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson