Liðakynning KS deildarinnar

  • 14. febrúar 2023
  • Tilkynning
Næsta lið sem deildin kynnir til leiks er lið Uppsteypu

Næsta lið sem kynnt er til leiks í Meistaradeild KS 2023 er lið Uppsteypu. KS deildin hefst 22. febrúar á keppni í gæðingafimi en hægt er að sjá dagskrá HÉR.

Ísólfur Líndal Þórisson er liðsstjóri en hann er reiðkennari frá Háskálanum á Hólum. Með honum er sonur hans Guðmar Líndal nemandi sem starfar við þjálfun hrossa en þetta er hans fyrsta ár í deildinni, Randi Holaker verkefnastjóri Reiðmannsins og reiðkennari við LBHI, Elvar Logi Friðriksson skagfirskur húnvetningur sem starfar sem tónlistarkennari & Fredrica Fagerlund reiðkennari og tamningakona frá Háskólanum á Hólum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link