Meistaradeild KS í hestaíþróttum Liðakynning KS deildarinnar

  • 1. febrúar 2023
  • Tilkynning
Næsta lið sem deildin kynnir til leiks er lið Íbishóls

Næsta lið sem kynnt er til leiks í Meistaradeild KS 2023 er sigurliðið frá því árið 2021, lið Íbishóls. KS deildin hefst 22. febrúar á keppni í gæðingafimi en hægt er að sjá dagskrá HÉR.

Fátt er reynslunni fróðara en liðsstjóri þessa liðs, Magnús Bragi Magnússon hrossaræktandi á Íbishóli. Með honum er sonur hans Guðmar Freyr Magnússon nemandi á þriðja ári við Háskólann á Hólum, Védís Huld Sigurðardóttir þjálfari á Sunnuhvoli, Freyja Amble Gísladóttir þjálfari JF hesta og ný inn í deildina kemur Árný Oddbjörg Oddsdóttir reiðkennari frá Háskólanum á Hólum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link