Liðakynning Uppsveitadeildarinnar

  • 2. janúar 2023
  • Fréttir
Næsta lið sem deildin kynnir til leiks er lið Kerchaert
Uppsveitadeildin verður á sýnum stað í vetur í reiðhöllinni á Flúðum. Fyrsta keppniskvöldið er 10. febrúar en keppt verður í fjórgangi. Mótin eru með ca. mánaðar millibili en næst er keppt í fimmgangi 10. mars og lokamótið er 14. apríl en þá er keppt í skeiði og tölti.
Stjórn Uppsveitadeildarinnar er byrjað að kynna liðin sem keppa í deildinni í vetur. Næsta lið sem þau kynna til leiks í Uppsveitadeildinni 2023 er lið Kerchaert.
Liðið skipa :

Rúna Tómasdóttir 23 ára. Rúna er þessa dagana í fjarnámi í Háskólanum á Akureyri en ásamt því er hún í fullu starfi við að sinna hundunum sínum tveimur, barni og manni.

Ylfa Guðrún Svafarsdóttir 22 ára. Ylfa sló í gegn í Hjaltadalnum og upplifði drauminn með Völu og er einnig menntaður reiðkennari og tamingarmaður. Ylfa starfar sjálfstætt við tamingar og þjálfun í Hafnarfirði ásamt því að sinna kennslu hér og þar.

Ólöf Helga Hilmarsdóttir (Liðsstjóri) 23 ára. Ólöf hefur lokið grunnnámi í félagsráðgjöf og starfar í dag í félagsmiðstöð ásamt því að þjálfa nokkur vel valin hross á fákssvæðinu, hennar aðal hlutverk þar er að vera stemnings konan í reiðhöllinni í Víðidal.

Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir 21 árs. Gyða varði haustinu austur í örvæfum að smala kindum og þjóna á hóteli en hefur nú áttað sig á því að það var ekki alveg málið. Hún vinnur núna í NPA setri Suðurlands og þjálfar hesta á Selfossi.

Vala Sigurbergsdóttir 24 ára. Vala upplifði skagfirska drauminn og er þar með menntaður reiðkennari og tamingarmaður. Vala starfar í dag á Kvíarhóli ásamt því að sinna kennslu í Spretti.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link