„Líður vel núna og leið vel í brautinni“

  • 21. apríl 2021
  • Fréttir

Guðmar og Glymjandi sultuslakir mynd: Bjarney Anna

Guðmar Freyr Magnússon gerði sér lítið fyrir og sigraði keppni í slaktaumatölti sem fram fór í kvöld, síðasta vetrardag, í Meistaradeild KS. Hann hlaut í einkunn 7,71. Hann sat gæðinginn, Glymjanda, sem eins og Guðmar er frá Íbishóli, en er nú í eigu Glódísar Rúnar Sigurðardóttir sem lánaði Guðmari hestinn. „Mér líður vel núna, mér leið vel á meðan ég var í brautinni og sennilega á mér eftir að líða vel á morgun líka þegar ég vakna“. Segir Guðmar þegar honum er óskað til hamingju af blaðamanni Eiðfaxa og spurður að því hvernig sigurtilfinningin sé.

Glymjandi er undan Dynjanda frá íbishóli og Sölku frá Tumabrekku en hvernig lýsir Guðmar hestinum? „Þetta er frábær klárhestur, þjáll, samvinnufús og vill allt fyrir manninn gera. Stefnan er núna að skila hestinum aftur í Sunnuhvol og leyfa Glódísi að halda áfram að þjálfa og njóta hestsins síns. Ég vil nýta tækifærið í þessu viðtali við Eiðfaxa og þakka fjölskyldunni á Sunnuhvoli kærlega fyrir lánið á hestinum og óska þeim góðrar heimferðar en þau keyra suður yfir heiðar í nótt.“ Hvernig var undirbúningur hjá Guðmari fyrir kvöldið? „Heyrðu, það var bara shower, gel í hárið og fína dressið, svo tók ég bara í tauminn.“

Stemming í Skagafirði eins og alltaf

„Keppnisgreinarnar sem framundan eru líta vel út hjá mér ég hef úr að velja Snillingi frá Íbishóli og Rosa frá Berglandi í fimmgangi, er með skemmtilegan upprennandi töltara sem heitir Sigursteinn frá Íbishóli og svo stefni ég í skeiðið með Brimar frá Varmadal.“ Segir Guðmar spurður um næstu keppnisgreinar í KS deildinni. En svona að lokum hvernig er stemningin í Skagafirði og hvað er framundan á sumardaginn fyrsta? „Stemningin hér er æðisleg. Ég ætla núna þegar ég er búinn að skella á þig að fylgja Glymjanda upp á kerru. Svo vakna ég ferskur í fyrramálið og held áfram við að þjálfa hross í firðinum fagra.“

Eiðfaxi þakkar Guðmari fyrir spjallið og óskar honum áframhaldandi velgengni.

Heildarniðurstöður í slaktaumatölti í Meistaradeild KS birtast þegar þær berast.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link