Líf í Víðidal á fimmtudag
Fákur býður borgarbúum að kynna sér fjölbreytt starfsemi á félagssvæði hestamannafélagsins í Víðidal á Sumardaginn fyrsta, 19.apríl. Milli kl. 13 – 16 munu Reiðskóli Reykjavíkur og Faxaból bjóða börnum á hestbak þar sem teymt verður undir þeim og skólarnir munu einnig kynna starfsemi sína. Heppnir krakkar geta unnið sér frítt reðnámskeið í sumar með þátttöku í spurningakeppni.
Reiðskólarnir á svæðinu hafa starfað til margra ára og alið upp margan hestamanninn með metnaðarfull námsekeið fyrir börn og unglinga þar sem þau læra almenna reiðmennsku og umgengni við hesta.
Einnig verða nokkur hesthús á svæðinu opinn fyrir gestum og gangandi þar sem fólk getur séð hvernig nútíma aðbúnaður er hjá hestum og mönnum í dag. Á sama tíma verður Firmakeppni Fáks haldin en þar keppa hinir almennu félagsmenn sín á milli í tölti allt frá banaflokki og upp í fullorðinsflokk á hestum sínum.
Í Félagsheimi Fáks verður boðið upp á afmæliskaffi ásamt meðlæti á sama tíma.
Allir velkomnir í Víðidal á fimmtudag!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH