Lífið hjá hestamannafélögum: Folaldasýning og Uppskeruhátíðir
Framkvæmdir og mannfögnuðir ber hæst hjá hestamannafélögunum þessa daganna:
- Harðsnúinn hópur Sörlamanna settu upp kvist á félagsaðstöðuna á Sörlastöðum um sl. helgi. Framkvæmdir við Sörlastaði munu halda áfram í vetur og er verklögnum félagsmönnum hvattir til að aðstoða við smíðarnar.
- Félagsfundur Blæs verður haldinn í kvöld kl. 20.30 í félagshúsi Blæs á Kirkjubólseyrum.
- Þau eru þónokkuð mörg félögin sem boða til fagnaðar þessa daganna.
Uppskeruhátíð Þyts og Hrossaræktarsamtaka V-Hún. Fer fram nú á laugardag.
Uppskeruhátíð Snæfellings fer fram föstudaginn 11. nóvember á Kóngsbakka.
Uppskeruhátíð Léttis og Funa verður haldin laugardagskvöldið 12. nóvember í Freyvangi. - Freyfaxi boðar hestamenn í Bingó 10. Nóvember nk. kl. 20 að Iðavöllum. “Fullt af verðlaunum sem við verðum í vandræðum með að losna við. Óskum eftir sem flestum til að fara klifjaðir heim. Meðal vinninga eur nokkrir folatollar undan frægum graðhestum. Málverk eftir Pétur Behrens og margt fleira. Í fyrra var fullt út að dyrum og er því fólk beðið að koma snemma til að tryggja sér sæti. Kaffiveitingar í hléinu og hætti sveitunga.”
- Hestamannafélagið Sindri stendur fyrir folaldasýningu 20. nóvember nk. í Skálakoti kl. 11. “Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu fimm sætin í annarsvegar flokki merfolalda og hinsvegar flokki hestfolalda. Verðlaun fyrir fyrsta sætið eru glæsileg m.a. farandbikar, eignabikar og folatollur undir hátt dæmdan 1. verðlauna stóðhest. Súpusala í betristofunni og happdrætti fyrir alla. Einnig verður ungfolasýning 2-3 vetra fola eftir matarhléið, þar gefst félagsmönnum færi á að auglýsa fola sína.” Upplýsingar um skráningu má nálgast á heimasíðu félagsins.
- Umfangsmiklar framkvæmdir fara nú fram á félagssvæði Fáks fyrir Landsmótið næsta sumar og er Hvammsvöllur lokaður vegna þeirra í nokkra daga.
- Hestamannafélagið Fákur leitar að áhugasaömum aðilum til að leiða og byggja upp ferðatengda þjónustu á svæðinu. “Markmiðið er að geta boðið upp áhugaverðan valkost fyrir ferðamenn í Reykjavík en töluverð þörf er á nýrri afþreyingu fyrir sí aukinn fjölda ferðamanna í Reykjavík og allt sem viðkemur íslenska hestinum hefur mikið aðdráttarafl. Á félagssvæði Fáks eru góða aðstæður á að taka á móti ferðamönnum og er aðstaða til sýninga, kynninga og móttöku ferðamanna mjög góð þ.e. húsakostur og vellir.” Frekari upplýsingar má nálgast hér.
A landsliðshópur Íslands