Líflandsmót Fáks 15. apríl
Líflandsmót æskulýðsdeildar Fáks verður haldið 15. apríl í Reiðhöllinni í Víðidal. Keppt verður í Pollaflokki í tölti, Barnaflokki tölt og fjórgangi, Unglingaflokki tölti, fjórgangi og fimmgangi, Ungmennaflokki í tölti, fjórgangi og fimmgangi.
Mótið er alvöru mót þar sem fimm dómarar dæma. Skráning verður í Reiðhöllinni í Víðidal þriðjudaginn 10. apríl frá kl. 18.00-19.00. Einnig í s. 567-0100, 820-1117 og 898-8445 gegn greiðslu með kreditkorti.
Glæsileg verðlaun eru í boði, en rúsínan í pylsuendanum er í boði Líflands. Það er hnakkurinn Óðinn og allir sem taka þátt eiga möguleika, því dregið er úr nöfnum allra þátttakenda á mótinu. Það gildir því gamli góði ungmennafélagsandinn – Að vera með!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH