Líkamsbeiting hesta og reiðmennska
Opið fræðslukvöld um líkamsbeitingu hesta og reiðmennsku með Mette Moe Mannseth föstudagskv 20 jan í Harðarbóli Mosfellsbæ kl. 19.30
Félag tamningamanna þakkar þeim sem lögðu sitt af mörkum á málþingi um stöðu keppnismála 5 janúar s.l.
Farið var um víðan völl og greinilega mikil þörf á samtali, skilningi og upplýsingum milli dómara, keppenda og mótshaldara allra svo áfram megi verða jákvæð þróun í móta/sýningarhaldi. Forsenda framfara er að staldra við og ræða stöðu mála.
Eitt af því sem mikið bar á góma var mikilvægi þess að geta greint rétta líkamsbeitingu og burð hesta á öllum gangtegundum og svo að greina góða reiðmennsku.
Í framhaldi af málþinginu, ætlar Félag tamningamanna í samstarfi við Gæðingadómarafélagið (gdlh), Gestaíþróttadómarafélagið (hídí)og kynbótadómara (rml) að hafa fræðsluerindi og fyrirspurnir um líkamsbeitingu hesta og reiðmennsku með Mette.
Mette er yfirkennari Háskólans á Hólum og tamningameistari FT.
Hvetjum ALLA sem hafa áhuga á reiðmennsku að mæta.
Kostar kr. 1000,- inn, enginn posi.
Saman erum við öflug og gerum við gott betra!
Kv. Stjórn FT í samstarfi við GDLH, HÍDÍ & RML
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH