Logi kominn með nýjan skeiðhest
Sjö vetra óþekktur vekringur rann 250 metra skeið á ótrúlegum tíma, 18,71 sekúndu, á kappreiðum í Hrísholti á dögunum, sem er langt undir gildandi heimsmeti. Sá er sjö vetra og heitir Gustur frá Syðri-Hofdölum í Skagafirði. Eigandi og knapi var hinn frægi skeiðreiðarmaður Logi Laxdal.
Gustur er ekki undan þekktum hrossum. Föðurafi er klárhesturinn Logi frá Skarði, en í ættartréinu eru nöfn eins og Kjarval frá Sauðárkróki, Hrafn frá Holtsmúla, Leiknir frá Svignaskarði og Tvífari frá Hesti. Hann er gríðar stór og langur, rauðstjörnóttur.
Logi segir að tíminn sé ekki löglegur. Hefð sé fyrir því í Hrísholti að ríða á tölti að ráslínu, sem sagt fljótandi start. Einnig hafi meðvindur verið nokkur. „Ég held hins vegar að þetta sé með fljótari hestum sem ég hef verið með. Ég hef hleyp nokkrum þekktum hestum þarna við sömu aðstæður og þeir fór á góðum tímum, en ekkert nálægt þess. Völlurinn er ekki góður, þungur og mishæðóttur, þannig að ég held að Gustur geti gert góðan tíma við góðar aðstæður með venjulegu starti. Eina sem getur tafið fyrir honum er knapinn, sem er orðinn helst til þungur,“ segir Logi í gamansömum tóni.
Þess má geta að Gustur og Logi munu að öllum líkindum taka þátt í skeiðkappreiðum á móti Harðar í Mosfellsbæ um helgina, og jafnvel fleiri mótum síðsumars.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH