Lokakvöld Skagfirsku mótaraðarinnar
Nú er komið að lokakvöldi í skagfirsku mótaröðinni og verður það miðvikudagskvöldið 14. apríl í reiðhöllinni Svaðastaðir. Keppni byrjar kl: 18:00 og er það fyrr en vant er, þar sem verður keppt í þremum greinum.
Keppt verður í tölti í þremum flokkum ( 1.flokki, 2.flokki og unglingaflokki), fimmgangi í einum flokki og skeiði. Keppni hefst á tölti síðan fimmgangi og eftir hlé verður keppt í skeiði og úrslit riðin í sömu röð og forkeppni.
Skráning er í síma 8482013 og 842 5240 fyrir mánudagskvöld 12. apríl. Skráningargjald er 2000.- krónur ( hver skráning ) og greiðist á staðnum. Aðgangseyrir er 1000.- krónur og er frítt fyrir 12 ára og yngri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH