Lokamótið í kvöld
Lokakvöld KS-Deildarinnar fer fram í kvöld í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki.
Mikil spenna er í einstaklingskeppninni þar sem allnokkrir knapar eiga raunhæfann möguleika á sigri.
Þórarinn Eymundsson sem fyrirfram var talinn nokkuð sigurstranglegur varð fyrir því óhappi að skeiðhestur hans Bragur frá Bjarnastöðum forfallaðist og mun hann mæta með Þey frá Prestbæ í hans stað. Gefur þetta öðrum knöpum aukna möguleika þar sem Bragur er einn fjótasti skeiðhestur landsins.
Búist er við fjölda áhorfenda í Svaðastaðahöllina í kvöld að fylgast með æsispennandi lokakvöldi KS-Deildarinnar.
Meðfylgjandi er staða einstaklingskeppninnar fyrir loka kvöldið.
Ísólfur Líndal 55
Bjarni Jónasson 54
Þórarinn Eymundsson 53
Mette Mannseth 49
Líney María 43
Elvar Einarsson 37,5
Hörður Óli 35,5
Baldvin Ari 32
Arnar Bjarki 29,5
Tryggvi Björnsson 26
Vigdís Gunnarsdóttir 25,5
Gísli Gíslason 25
Sölvi Sigurðarson 22
Sigvaldi Lárus 21
Þorbjörn Matthíasson 19,5
Jóhann Magnússon 17
Viðar Bragason 16
Hlín Mainka 9,5
Liðakeppnin
Hrímnir 131,5
Draupnir/Þúfur 103,5
laekjamot.is 102,5
Weierholz 92
Topreiter/S-Skörðugil 95,5
Björg/Fákasport 45
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH