Loki á þau afkvæmi sem hæsta einkunn hlutu fyrir tölt

  • 3. desember 2021
  • Fréttir

Loki frá Selfossi, knapi Sigurður Sigurðarson

Af þeim stóðhestum sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu

Þegar öllum kynbótasýningum er lokið er hægt, með hjálp Worldfengs, að setjast niður og reikna út hin ýmsu meðaltöl hrossaræktendum til gagns og fróðleiks.

Eiðfaxi birti í fyrra lista yfir stóðhesta, með ákveðinn fjölda afkvæma, og hverjir af þeim væru að skila hæstu einkunnum fyrir ákveðna eiginleika í sköpulagi og hæfileikadómi. Eiðfaxi ætlar að gera það sama í ár og byrja á því að skoða meðaltal einkunna afkvæma sem komu til fullnaðardóms á árinu fyrir tölt og hægt tölt.

Alls eru 29 stóðhestar sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu.

Loki frá Selfossi er sá stóðhestur sem skilaði þeim afkvæmum sem hæsta einkunn hlutu fyrir bæði tölt og hægt tölt. Meðaleinkunn þeirra fyrir tölt er 8,56 og meðaltals einkunn fyrir hægt tölt er 8,33. Hann á alls 18 afkvæmi með fullnaðardóm á árinu og meðalaldur þeirra er 6,8 ár.

Næstir í röðinni eru Skýr frá Skálakoti og Hringur frá Gunnarsstöðum en afkvæmi þeirra eru með meðaleinkunnina 8,46 fyrir tölt. Meðalaldur afkvæma Skýrs er 5,3 en sýnd voru 37 afkvæmi undan honum í ár og meðalaldur afkvæma Hrings er 4,8 ár en sýnd voru undan honum 12 afkvæmi í ár.

Hér er listi yfir alla þá stóðhesta sem eiga 10 eða fleiri fullnaðardæmd afkvæmi á árinu raðað eftir meðaleinkunn fyrir tölt.

Nafn Fjöldi afkvæma Meðalaldur Tölt Hægt tölt
Loki frá Selfossi 18 6,8 8,56 8,33
Skýr frá Skálakoti 37 5,3 8,46 8,09
Hringur frá Gunnarsstöðum 12 4,8 8,46 8,08
Sjóður frá Kirkjubæ 20 6,3 8,45 8,08
Óskasteinn frá Íbishóli 16 6,6 8,41 8,31
Hrannar frá Flugumýri II 30 5,6 8,38 8,10
Arion frá Eystra-Fróðholti 29 5,8 8,36 8,21
Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum 10 5,6 8,35 8,15
Krákur frá Blesastöðum 1A 10 8,4 8,35 8,15
Jarl frá Árbæjarhjáleigu 13 6,5 8,31 8,23
Konsert frá Hofi 51 5,1 8,30 7,99
Spuni frá Vesturkoti 37 6,8 8,28 7,99
Trymbill frá Stóra-Ási 16 5,9 8,28 8,13
Herkúles frá Ragnheiðarstöðum 14 5,9 8,25 7,93
Hreyfill frá Vorsabæ 11 5,5 8,23 7,82
Hróður frá Refsstöðum 10 6,2 8,20 8,20
Hnokki frá Fellskoti 23 5,5 8,20 7,96
Viti frá Kagaðarhóli 13 5,7 8,19 8,00
Stáli frá Kjarri 35 6,7 8,19 7,86
Ómur frá Kvistum 33 6,4 8,18 7,95
Kiljan frá Steinnesi 14 6,8 8,18 7,93
Draupnir frá Stuðlum 11 4,3 8,14 8,00
Eldur frá Torfunesi 11 6,3 8,14 7,82
Ölnir frá Akranesi 34 5,4 8,13 7,85
Álfasteinn frá Selfossi 15 7,1 8,10 7,93
Skaginn frá Skipaskaga 10 4,9 8,10 7,75
Álfur frá Selfossi 27 7,2 8,04 7,81
Arður frá Brautarholti 10 6,6 8,00 7,70
Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum 11 5,3 7,91 7,86

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link