Lord á þau afkvæmi sem hæsta einkunn hlutu fyrir brokk

  • 1. nóvember 2022
  • Fréttir
Meðaltal fyrir brokk hjá afkvæmum stóðhesta sem eiga fjögur til níu dæmd afkvæmi á árinu.

Þegar öllum kynbótasýningum er lokið er hægt, með hjálp Worldfengs, að setjast niður og reikna út hin ýmsu meðaltöl hrossaræktendum til gagns og fróðleiks.

Eiðfaxi tekur nú fyrir eiginleika í hæfileikdómi. Skoðum næst brokk og meðaltals einkunna afkvæma stóðhesta sem hafa skila 4-9 afkvæmum í fullnaðardóm á árinu.

Alls eru 52 stóðhestar sem eiga fjögur til níu dæmd afkvæmi á árinu.

Lord frá Vatnsleysu er sá stóðhestur sem skilaði þeim afkvæmum sem hæsta einkunn hlutu fyrir brokk. Meðaleinkunn þeirra fyrir brokk er 8,80 en hann á alls 5 dæmd afkvæmi á árinu og meðalaldur þeirra er 6,4 ár.

Næstur er Lexus frá Vatnsleysu en meðaltal afkvæma hans fyrir brokk er 8,75, meðalaldur 6,8 og átti hann fjögur sýnd afkvæmi á árinu. Vökull frá Efri-Brú er þriðji en hann átti sex sýnd afkvæmi á árinu og meðalaldur þeirra var 5,7 ár og meðaltal þeirra fyrir brokk var 8,67.

Listi yfir þá stóðhesta sem eiga fjögur til níu fullnaðardæmd afkvæmi á árinu raða eftir meðaleinkunn fyrir tölt.
ATH: Hægt er að færa sig fram og til baka á töflunni til þess að sjá alla eiginleika.
Stóðhestur Fjöldi afkv. Aldur Brokk
Lord frá Vatnsleysu 5 6,4 8,80
Lexus frá Vatnsleysu 4 6,8 8,75
Vökull frá Efri-Brú 6 5,7 8,67
Hraunar frá Hrosshaga 4 5,0 8,50
Apollo frá Haukholtum 6 4,7 8,42
Vákur frá Vatnsenda 4 7,0 8,38
Framherji frá Flagbjarnarholti 7 7,4 8,36
Aðall frá Nýjabæ 6 6,5 8,33
Barði frá Laugarbökkum 5 7,2 8,30
Hrímnir frá Ósi 5 7,2 8,20
Vaki från Österåker 4 5,0 8,13
Knár frá Ytra-Vallholti 4 7,8 8,13
Straumur frá Feti 5 6,2 8,10
Múli frá Bergi 5 6,0 8,10
Narri frá Vestri-Leirárgörðum 5 6,4 8,10
Garri frá Reykjavík 6 7,5 8,08
Hrókur frá Hjarðartúni 7 5,1 8,07
Krákur frá Blesastöðum 1A 5 7,0 8,00
Trausti frá Þóroddsstöðum 4 5,5 8,00
Nökkvi frá Syðra-Skörðugili 4 5,3 8,00
Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði 8 7,9 8,00
Dagfari frá Álfhólum 7 4,9 8,00
Sævar fra Teland 5 6,0 8,00
Sólon frá Skáney 9 6,2 7,94
Hákon frá Ragnheiðarstöðum 9 5,0 7,89
Boði frá Breiðholti 4 4,5 7,88
Stormur frá Herríðarhóli 4 5,8 7,88
Grímur frá Efsta-Seli 4 7,5 7,88
Erill frá Einhamri 4 5,5 7,88
Nói frá Stóra-Hofi 4 6,0 7,88
Eldur frá Torfunesi 9 6,9 7,83
Sær frá Bakkakoti 8 6,1 7,81
Kjerúlf frá Kollaleiru 5 6,6 7,80
Skinfaxi fra Lysholm 7 5,1 7,79
Klettur frá Hvammi 4 7,3 7,75
Sædynur frá Múla 4 6,8 7,75
Vilmundur frá Feti 4 6,5 7,75
Moli frá Skriðu 4 5,8 7,75
Starri frá Herríðarhóli 4 6,0 7,75
Þráinn frá Flagbjarnarholti 5 4,0 7,70
Oliver frá Kvistum 6 5,5 7,67
Kolskeggur frá Kjarnholtum 9 6,8 7,67
Drumbur frá Víðivöllum fremri 4 4,5 7,63
Tígull fra Kleiva 4 5,0 7,63
Kjarval från Knutshyttan 4 5,8 7,63
Sirkus frá Garðshorni 5 4,4 7,60
Viktor fra Diisa 7 6,4 7,57
Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum 9 6,0 7,56
Viking från Österåker 5 5,0 7,50
Ísak frá Þjórsárbakka 4 4,8 7,50
Toppur frá Auðsholtshjáleigu 7 6,7 7,43
Mars frá Feti 4 6,8 7,38

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link