Málefnin einungis til umræðu

  • 2. febrúar 2023
  • Fréttir
Viðtal við ræktunarleiðtoga Íslands, Elsu Albertsdóttur

Á þriðjudaginn birtist á vef Eiðfaxa aðsend grein frá Kristbjörgu Eyvindsdóttur, ræktanda í Auðsholtshjáleigu. Greinin bara heitið „Upplýsingar til ræktenda íslenska hestsins“ og benti hún þar á að verið væri að setja fram nýjar reglur til samþykktar á ráðstefnu FEIF um helgina. Reglurnar tengjast ræktunarmálum íslenska hestsins en önnur snertir á umgjörðinni í kringum m.a. Kynbótasýningar og hin hversu oft má sýna hross á kynbótasýningu í einni viku. Velti hún fyrir sér hvaðan þessar reglur koma og hverjar séu ástæður tillögunnar?

Eiðfaxi ákvað að heyra í Elsu Albertsdóttur, ræktunarleiðtoga Íslands, en hún situr einnig í ræktunarnefnd FEIF ásamt Heimi Gunnarssyni, Inge Kringeland, Olil Amble, Rune Hansen og Dórótheu Sigríði Unnsteinsdóttur.

“Þetta er tillaga sem er til umræðu á þinginu en hún er ekki til kosninga, þannig að það er ekki verið að fara taka ákvörðun um hana á FEIF þinginu nú um helgina. Umræða um þátttöku hrossa á kynbótasýningum kom upp að loknu sýningarárinu í fyrra þar sem verið var að sýna hross kannski tvisvar í sömu viku til fullnaðardóms. Fjallað var um þetta í Fagráði hér á Íslandi og í kjölfarið var þetta rætt í ræktunarnefnd FEIF á haustfundi í október,” segir Elsa og leggur áherslu á að þetta sé ekki regla sem verið er að leggja fram til samþykktar heldur einungis tillaga sem enn eigi eftir að móta. „Yrði þessi tillaga áframgeng yrði hún alltaf kynnt áður en hún færi til kosninga á FEIF þingi í febrúar 2024, enda mikilvægt að fá sem flest sjónarmið á þær reglur sem gilda hverju sinni.“

“Það er mikil umræða í hestaheiminum hvort og þá hvernig hross skuli vera brúkuð. Þar vegur stórt hvort notkun hrossa sé hestvænleg eða ekki. Mín skoðun er sú að við verðum að vera skrefi á undan þeirri umræðu, sér í lagi ef hún mun verða til þess að skerða eða takmarka leyfi okkar að brúka hross líkt og gert er í dag. Þá er vert að velta fyrir sér hvað er hestvænlegt og vissulega þarf það að vera byggt á vísnindalegum staðreyndum. Við verðum að vera ófeimin að taka umræðuna. Varðandi hvað telst vera hestvænlegt þarf auðvitað að taka tillit til mismunandi aðstæðna svo sem aldurs hrossa, það ætti að vera talsverður munur á því að sýna fullharðnaðann átta vetra graðhest oftar innan viss tíma heldur en fjögurra vetra hross sem hefur enn ekki náð fullum líkamlegum eða andlegum styrk,” bætir hún við.

Ráðstefna FEIF fer fram um helgina í Stokkhólmi í Svíþjóð en þar verða ýmis konar málefni rædd. HÉR er hægt að sjá þær reglur sem verið er að fara kjósa og taka ákvarðanir um. HÉR er hægt að sjá nánari útskýringar á þeim tillögum sem verða til samþykktar á þinginu.

Kosin verður ný stjórn FEIF um helgina og mun Jean-Paul Balz líklega vera nýr forseti FEIF eftir helgina en hann er einn í framboði til embættisins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link