Máni heldur kvenna- og karlatölt

  • 18. mars 2024
  • Tilkynning
Opið karla- og kvennatölt Mána verður á föstudaginn

Opið Karla og kvennatölt Mána 2024 verður haldið föstudagskvöldið 22.mars í Reiðhöll Mána og hefst mótið kl.18.00

Einungis 1.flokkur í karla og kvennaflokki eru opnir. Keppt verður í þremur flokkum í kvennaflokki og tveimur flokkum í karlaflokki. Í 2. og 3. flokk langar Mánafélögum að bjóða Brimfaxafélögum að vera með, flokkarnir eru annars lokaðir.

  • 1. flokkur kvenna keppir eftir T3 – Opinn flokkur.
  • 2. flokkur kvenna keppir eftir T3 – Einungis fyrir Mána og Brimfaxa félaga
  • 3. flokkur kvenna keppir eftir T7 – Einungis fyrir Mána og Brimfaxa félaga
  • 1. flokkur karla keppir eftir T3 – Opinn flokkur
  • 2. flokkur karla keppir eftir T7 – Einungis fyrir Mána og Brimfaxa félaga

Verð á skráningu er 3.500 kr. og er 20 ára aldurstakmark. Þema kvöldsins er: 80′ diskó

Skráning fer fram á gjaldkeri@mani.is með upplýsingum um nafn knapa, nafn hests og uppá hvora hönd á að ríða. Einnig verður skráning í reiðhöllinni þriðjudagskvöldið 19.mars milli 18 og 19.

Röðun á dagskrá:

  • 3.fl kvenna
  • 2.fl karla
  • 2.fl kvenna
  • 1.fl karla
  • 1.fl kvenna

Nánari tímasetningar koma síðar en stjórn Mána hlakkar til að sjá sem flesta

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar