MD2014 á Stöð2 sport
Meistaradeildin verður sýnd á Stöð2 Sport í vetur
Meistaradeildin í hestaíþróttum og 365 miðlar / Stöð2 sport hafa gert með sér samstarfssamning um beinar útsendingar frá mótaröð MD 2014.
Hér er um að ræða tímamótasamning hvað varðar allan fréttaflutning af keppninni og umfjöllun á hestamennsku, Með samningi þessum er verið að færa hestamennskuna í sjónvarpi og neti uppá nýtt plan þar sem tryggð verða hámarksgæði á útsendingum.
Öll keppnisröðin verður sýnd í beinni útsendingu á Stöð2 sport og einnig í gegnum netið í háskerpu gæðum fyrir alla hestaunnendur bæði nær og fjær.
Stöð2 Sport mun einnig verða með sérstaka umræðuþætti um keppnisröðina áður en keppnistímabilið 2014 hefst og einnig fer fram umræða eftir hverja keppni í vetur.
Samstarfsamningurinn verður undirritaður á mánudaginn 16.desember kl 15:00 á Nauthól við Nauthólsvík – þar sem nokkrir gæðingar munu sýna listir sínar eftir undirskrift.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum