Meistaradeild á fimmtudag
Á fimmtudag kl. 19 fer fram fjórða mót Meistaradeildar í hestaíþróttum, þá verður keppt í slaktaumatölti og fljúgandi skeiði í gegnum höllina.
Keppendur eru að leggja lokahönd á val sitt á hestum og verða ráslistar birtir á morgun. Í fyrra sigruðu Hulda Gústafsdóttir, Árbakka/Norður-Götum, og Sveigur frá Varmadal sem slaktaumatöltið. Fljúgandi skeiðið sigruðu þeir Sigurbjörn Bárðarson, Lýsi, og Flosi frá Keldudal. Kæmi því ekki á óvart þótt Hulda og Sigurbjörn mættu aftur með sömu hesta.
Forsala aðgöngumiða er hafin í verslunum Líflands, Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi á Selfossi og er aðgangseyrir 1.500 krónur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH