Meistaradeild Cintamani í hestaíþróttum
Fyrsta mót Meistaradeildar í hestaíþróttum hefst á fimmtudaginn með keppni í fjórgangi.
Ráslistinn er klár en fyrstur í braut er Þórarinn Ragnarsson á Spunasyninum, Leik frá Vesturkoti.
Sigurvegarinn frá því í fyrra, Jakob Svavar Sigurðsson mætir með annan hest, Herkúles frá Ragnheiðarstöðum og verður spennandi að sjá hvað þeir gera. Íslandsmeistararnir í fjórgangi, Árni Björn Pálsson og Flaumur frá Sólvangi, eru 12 í rásröðinni.
Það lítur allt út fyrir að þetta verði hörku keppni í Samskipahöllinni þar sem bestu fjórgangarar landsins etja kappi saman.
Húsið opnar kl. 17:00 en setning deildarinnar hefst kl. 18:30. Það er því nægur tími að koma snemma og njóta dýrindis veitinga í veislusal Samskipahallarinnar og taka þátt í Hesta-Quizinu þar sem glæsilegir vinningar eru í boði.
Miðasala gengur mjög vel en mælum við með því að fólk tryggi sér miða inn á TIX.IS. Einnig minnum við á að hægt er að horfa á deildina beint inn á oz.com/meistaradeildin en einnig verður sýnt beint frá deildinni á RÚV 2.
Ráslistinn.
1.Þórarinn Ragnarsson Leikur frá Vesturkoti Hrímnir/Export hestar
2.Bergur Jónsson Glampi frá Ketilsstöðum Gangmyllan
3Matthías Leó Matthíasson Taktur frá Vakurstöðum Top Reiter
4.Janus Halldór Eiríksson Selma frá Auðsholtshjáleigu Auðsholtshjáleiga
5.Ólafur Ásgeirsson Glóinn frá Halakoti Hestvit/Árbakki/Sumarliðabær
6.Sigursteinn Sumarliðason Háfeti frá Hákoti Lífland
7.Viðar Ingólfsson Maístjarna frá Árbæjarhjáleigu Hrímnir/Export hestar
8.Ólafur Andri Guðmundsson Gerpla frá Feti Ganghestar/Margrétarhof
9.Arnar Bjarki Sigurðarson Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum Torfhús
10.Elin Holst Frami frá Ketilsstöðum Gangmyllan
11.Hulda Gústafsdóttir Sesar frá Lönguskák Hestvit/Árbakki/Sumarliðabær
12.Árni Björn Pálsson Flaumur frá Sólvangi Top Reiter
13.Ragnhildur Haraldsdóttir Úlfur frá Mosfellsbæ Ganghestar/Margrétarhof
14.Eyrún Ýr Pálsdóttir Kjarval frá Blönduósi Top Reiter
15.John Sigurjónsson Æska frá Akureyri Torfhús
16.Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Óskar frá Breiðstöðum Ganghestar/Margrétarhof
17.Hinrik Bragason Hrókur frá Hjarðartúni Hestvit/Árbakki/Sumarliðabær
18.Olil Amble Rauðka frá Ketilsstöðum Gangmyllan
19.Siguroddur Pétursson Steggur frá Hrísdal Hrímnir/Export hestar
20.Jakob Svavar Sigurðsson Herkúles frá Ragnheiðarstöðum Lífland
21.Ásmundur Ernir Snorrason Frægur frá Strandarhöfði Auðsholtshjáleiga
22.Hanne Oustad Smidesang Roði frá Hala Torfhús
23.Þórdís Erla Gunnarsdóttir Sproti frá Enni Auðsholtshjáleiga
24.Hanna Rún Ingibergsdóttir Grímur frá Skógarási Lífland
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH