Meistaradeild í hestaíþróttum
Stjórn Meistaradeildar í hestaíþróttum vill minna áhugasama á að í dag er síðasti séns að sækja um áttunda liðið í deildinni en..
vegna mikillar aðsóknar hefur stjórn deildarinnar ákveðið að bæta við einu liði þannig að liðin verða 8 í ár en ekki 7 eins og síðustu ár. Þar sem mjög stutt er í að mótaröðin hefst er ekki hægt að gefa langan tíma til að sækja um lið í deildinni.
Áhugasömum er bent á að hafa sambandi við Kristinn Skúlason í síma 822
7009 eða í senda póst á [email protected] í síðasta lagi í dag, mánudaginn 13.
desember.
Stjórn Meistaradeildar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári