Meistaradeild KS og Uppsveitadeildin á dagskrá í kvöld
Rósa Birna og Frár munu reyna sitt best við það að verja sigur í Uppsveitadeildinni í fjórgangi
Það verður nóg að gera í kvöld hjá hestaáhugafólki því keppt verður í tveimur keppnisdeildum annarsvegar Uppsveitadeildinni á Flúðum og hins vegar Meistaradeild KS á Sauðárkróki. Báðar deildir eru sýndar í beinni útsendingu og því ætti engin að þurfa að missa af herlegheitunum. Eiðfaxi mun að sjálfsögðu fylgjast með því sem fram fer.
Í Meistaradeild KS á Sauðárkróki fer fram keppni í Slaktaumatölti. Sýnd er beint frá mótinu á TindastóllTV og nálgast má útsendinguna með því að smella hér. Hér má lesa ráslista í þeirri deild auk upplýsinga. Mótið í kvöld er þriðja keppnisgreinin og er spennan í einstaklings- og liðakeppni spennandi eins og alltaf í þessari sterku deild.
Í Uppsveitadeildinni á Flúðum, sem sýnd er beint á AlendisTV, verður keppt í fjórgangi og er það fyrsta mótið af þremur sem framundan eru. Ráslisti liggur fyrir og hann má skoða með því að smella hér. Í fyrra var það Rósa Birna Þorvaldsdóttir sem sigraði keppni í fjórgangi á stóðhestinum Frá frá Sandhóli, Ragnhildur Haraldsdóttir varð í öðru sæti á Úlfi frá Mosfellsbæ og Árni Oddbjörg Oddsdóttir varð í þriðja sæti á Erni frá Gljúfurárholti. Þær Rósa Birna og Ragnhildur eru á meðal keppenda í kvöld og munu ætla sér að vera á svipuðum slóðum, þó svo að margir aðrir frábærir keppendur munu að sjálfsögðu veita þeim keppni. Keppnin hefst kl. 19.30
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV