Meistaradeild ungmenna – lið Vallarbrautar
Sylvía Sól Magnúsdóttir er liðsstjóri Vallarbrautarliðsins í Meistaradeild ungmenna. Mynd: Aðsend
Þá er komið að fyrstu liðakynningu í Meistaradeild ungmenna og Dýralækna Sandhólaferju árið 2021.
Vallarbraut er fyrsta liðið sem kynnt er. Liðstjóri þess er Sylvía Sól Magnúsdóttir. Sylvía Sól stundar nám við Fjölbrautarskólann í Mosfellsbæ og tekur hross í þjálfun heima í Grindavík með skólanum. Hún stefnir á að keppa alla vega í fjórgangi, gæðingafimi og tölti T1
Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir er nemi í Fjölbrautarskóla Suðurlands og er að þjálfa hross samhliða námi. Hún stefnir á að keppa í fjórgangi, fimmgangi, gæðingafimi, tölti T1 og skeiði og svo er smá spurning með slaktaumatöltið einnig..
Þóranna Brynja Elvarsdóttir stundar sína hestamennsku í Víðidal. Hún tekur hross að sér í þjálfun þar ásamt því að vera í skóla. Hún stefnir á að keppa í fjórgangi, tölti T1, gæðingafimi, annað er óákveðið.
Kristín Hrönn Pálsdóttir stundar nám í Fjölbrautarskóla Suðurlands. Hún stefnir á að keppa í öllum greinum.

Meistardeild ungmenna og Dýralækna Sandhólaferju hefst föstudaginn 5. febrúar í Fákaseli.

Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH