Meistaradeild Ungmenna og Top Reiter 2023 Sjöunda liðið kynnt til leiks

  • 20. janúar 2022
  • Fréttir
Meistaradeild Ungmenna og Dýralækna Sandhólaferju 2022

Meistaradeild Ungmenna og Dýralækna Sandhólaferju hefst föstudaginn 4 febrúar en þá fer keppni fram í fjórgangi. Öll mótin fara fram á Ingólfshvoli í Ölfusi en þetta er þriðja árið í röð sem deildin er haldin.

Við höldum áfram með liðakynninguna en þetta er sjöunda liðið sem við kynnum til leiks, lið Sunnuhvols en liðsstjóri þar er Kristján Árni Birgisson og aðrir liðsmenn eru Glódís Rún Sigurðardóttir, Védís Hulda Sigurðardóttir og Sigrún Högna Tómasdóttir

Glódís Rún Sigurðardóttir

Aldur: 20 ára

Starf: Vinn hálfan daginn hjá Teit Árnasyni og síðan heima á Sunnuhvoli

Hvar ertu með keppnishestana þína? Er með keppnishestana heima á Sunnuhvoli

Hestamannafélag: Hestamannafélagið Sleipnir

Lífsmottó: If you aint first you’re last

Uppáhalds matur: Sushi eða Pizza

Uppáhalds drykkur: Collab

 

Kristján Árni Birgisson

Aldur: 18 ára

Skóli: Fjölbrautaskóli Suðurlands

Hvar ertu með keppnishestana þína?  Er með hestana heima í Ásmúla

Hestamannafélag: Hestamannafélagið Geysir

Lífsmottó: Betra að mæta seinn og sætur heldur en fljótur og ljótur

Uppáhalds matur: Lamba eða hrossakjöt

Uppáhalds drykkur: Pepsi max

 

Sigrún Högna Tómasdóttir

Aldur: 18 ára

Skóli: Fjölbrautaskóli Suðurlands

Hvar ertu með keppnishestana þína? Er með hestana mína heima á Kálfhóli

Hestamannafélag: Hestamannafélagið Smári

Lífsmottó:  If you can dream it you can do it

Uppáhalds matur: Gæsabringur

Uppáhalds drykkur: Pepsí

 

Védís Huld Sigurðardóttir

Aldur: 18 ára

Skóli: Stunda nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands

Hvar ertu með keppnishestana þína?  Er með hestana heima á Sunnuhvoli

Hestamannafélag: Hestamannafélagið Sleipnir

Lífsmottó: Eyes on the prize

Uppáhalds matur: Lasanga

Uppáhalds drykkur: Sykurlaust appelsín

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link