Meistaradeildin heldur áfram í vetur
Stjórn Meistaradeildar Líflands sendi frá sér tilkynningu að undirritaður hefur verið áframhaldandi samstarfssamningur á milli Líflands og Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum en samningurinn gildir út keppnistímabilið 2023 og mun deildin því áfram bera heitið „Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum“
„Samstarfssamningurinn við Lífland er mikilvægur fyrir Meistaradeildina, það skiptir öllu máli að hafa traustan samstarfsaðila, aðila sem er tilbúin að hlúa vel að hestaíþróttum, með jafn öflugan samstarfsaðila þá er hægt að gera alla umgjörð keppniskvölda sýnilegri, ásamt því halda þeim glæsileika sem deildin hefur verið lofuð fyrir síðustu árin.“
„Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum er sýnd í beinni útsendingu út um allan heim, á þremur tungumálum, áhorf hérlendis og erlendis vex með hverju ári og því mikilvægt að vanda alla umgjörð.“ segir jafnframt í tilkynningunni frá stjórninni
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH