Meistaradeildin ríður á vaðið

  • 17. apríl 2020
  • Fréttir

Stjórn Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum hefur ákveðið að halda lokamót deildarinnar fimmtudaginn 7.maí. Mótið verður haldið í Samskipahöllinni en engir áhorfendur verða leyfðir á staðnum.

Enginn hestamaður né hestaáhugamaður ætti þó að láta viðburðinn framhjá sér fara. Sýnt
verður beint frá mótinu í sjónvarpinu á rás 2 hjá RÚV.

Það stefnir í mikla veislu í Samskipahöllinni og harða og spennandi keppni á lokasprettinum,
jafnt milli liða sem keppnisknapa og margir knapar orðnir óþreyjufullir að láta ljós sitt skína.
Í lok keppninnar verða sigurvegarar krýndir bæði knapar og keppnislið. Staðan fyrir lokamótið er
þessi:

Einstaklingskeppnin:
1. Jakob Svavar Sigurðsson 38 stig
2. Viðar Ingólfsson 23 stig
3. Elin Holst 20 stig
3. Davíð Jónsson 20 stig
3. Konráð Valur Sveinsson

Liðakeppnin:
1. Hjarðartún 299 stig
2. Hrímnir / Export hestar 251,5 stig
3. Gangmyllan 236 stig.

Stjórn Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link