Meistaramót í Gæðingafimi og Parafimi 2022
Meistaramót í Gæðingafimi og Parafimi 2022 verður haldið í Rangárhöllinni dagana 22.-23.apríl 2022. Keppt verður í Gæðingafimi LH, öllum stigum og Parafimi.
Skráning er hafin og lýkur mánudaginn(annar í páskum) 18.apríl.
Skráning er inná sportfeng með Geysir sem aðildarfélag
Skráning er eftirfarandi og boðið verður uppá eftirfarandi flokka.
Þeir sem skrá sig í parafimina þá þurfa báðir knapar að vera í sömu pöntun til að vita hverjir eru saman í pari.
3.stig – Meistaraflokkur (fimikeppni A meistaraflokkur)
2.stig – 1.flokkur 22 ára og eldri (fimikeppni A 1.flokkur)
2.stig – Ungmennaflokkur (fimikeppni A ungmenni)
2.stig – Unglingaflokkur (fimikeppni A unglingar)
1.stig – 18 ára og eldri (fimikeppni A fullorðins)
1.stig – 10-17 ára (fimikeppni A barna)
Parafimi – 1.flokkur 18 ára og eldri (fimikeppni A2 1.flokkur)
Parafimi – 2.flokkur 18 ára og eldri (fimikeppni A2 2.flokkur)
Parafimi – 10-17 ára (fimikeppni A2 unglingar)
Þetta er fyrst opna mótið í Gæðingafimi og Parafimi þar sem er öllum er frjálst að taka þátt. Nú er bara að byrja að æfa sig og skrá sig til leiks. Nánari upplýsingar um reglur Gæðingafimi má finna inná lhhestar.is og reglur um Parafimi má finna inná rangarhollin.is.
Varðandi Parafimina þá geta keppendur mætt í pörum alveg óháð getustigi knapa. Nánari upplýsingar 8637130.
Nánari upplýsingar um mótið munu svo koma þegar nálgast mótið.
Hestamannafélagið Geysir
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH