Meistaramót Íslands – Ennþá hægt að skrá

  • 15. júlí 2020
  • Fréttir

Meistaramót Íslands í gæðingakeppni fer fram um næstu helgi á Gaddstaðaflötum við Hellu. Þátttaka er nokkuð góð og eru sterkir hestar skráðir til leiks. Keppt er í hinum hefðbundnu keppnisgreinum gæðingakeppninnar auk þess að keppt verðir í 100 metra skeiði og gæðingatölti.

Vegna fjölda fyrirspurna að þá verður skráning opin fram að miðnætti í dag miðvikudaginn 16.júlí. Skráning er í gegnum Sportfeng þar sem velja þarf Hestamannafélagið Geysi sem mótshaldara.  Veðurspáin fyrir helgina er mjög góð og tilfalið að taka þátt í einu stærsta gæðingamóti ársins.

Í Gæðingatölti er boðið uppá 2 flokka

17 ára og yngri (í sportfeng til að skrá,fjórgangur V5 ungmenna)

hér er dæmt hægt tölt, snúið við og frjálsferð uppá hina höndina ásamt ásetu og stjórnun á báðum atriðum sem þýðir að deilitalan er 4. Það munu vera 6 pör sem mæta í A-úrslit.

18 ára og eldri (í sportfeng til að skrá, fjórgangur V5 opinn flokkur)

hér er dæmt hægt tölt snúið við og frjálsferð uppá hina höndina ásamt vilja og fegurð í reið og er deilitalan 4 þar sem öll atriði gilda jafnt. Það mun vera 6 pör sem mæta í A-úrslit.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link