Meistardeild Ungmenna 2020
Sjö lið eru skráð til leiks og verða þau kynnt næstu daga.
Meðfylgjandi eru reglur og dagsetningum á deildinni í vetur.
Reglur Meistardeildar Ungmenna 2020
Meistaradeild Ungmenna
1. Deildin er fyrir öll ungmenni á aldrinum 18-21 á því keppnisári
2. Deildin er haldin á tímabili jan-apríl hvert ár
3. Deildin skipar 7 keppnislið. Heildar fjöldi knapa í deildinni eru 28 knapar.
4. Deildin er liðakeppni með 4 knöpum í hverju liði, 3 knapar keppa á hverju keppniskvöldi í fjórgangi, fimmgangi og gæðingafimi. Allir knapar geta keppt í tölti og skeiði en þrír efstu knapar liðsins telja til stiga.
5. Keppnisgreinar eru V1, F1, T1, skeið í gegnum höllina og gæðingafimi. Keppt er eftir reglum LH í hringvallargreinum og sömu reglur eru í Gæðingafimi og keppt er eftir í Meistardeildinni.
6. Hver knapi liðsins þarf að keppa í einni grein og hver knapi þarf að hvíla í einni grein.
7. 1.sæti gefur 22 stig, 2 sæti gefur 20 stig, 3 sæti gefur 19 stig, 4 sæti gefur 18 stig og alveg niður í 21.sæti
gefur 1 stig. Stig þeirra sem komast í úrslit ræðst af niðurstöðu úrslita, stig annara keppenda ræðst að niðurstöðu forkeppni. Séu knapar jafnir í einkunn skiptast stigin jafnt, nema ef um 1-2 sæti þá ræður sætaröðun dómara.
8. Deildin fer fram í Fákaseli í Ölfusi á föstudagskvöldum.
7.feb – fjórgangur
21.feb – fimmgangur
6.mars – gæðingafimi
20.mars – tölt og skeið
Komi upp vafaatriði varðandi Meistardeild Ungmenna 2020 skulu þau berast til stjórnar deildarinnar til afgreiðslu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH