Íslandsmót „Mér finnst mikið skemmtilegra að fara hratt“

  • 16. júlí 2023
  • Fréttir

Myndir: Marta Gunnarsdóttir

Snæfríður sigurvegari í unglingaflokki

A úrslitum í unglingaflokki gæðinga í boði Ljósvaka frá Valstrýtu var að ljúka og voru það Snæfríður Ásta Jónasdóttir og Liljar frá Varmalandi með einkunnina 8.71 sem sigruðu.

„Liljar er geggjaður fjórgangshestur og ég elska hann,“ segir Snæfríður eftir sigurinn. Ákveðið var að bjóða upp á gæðingakeppni líka á Íslandsmótinu og var Snæfríður mjög ánægð með þá ákvörðun. „Mér finnst geggjað að þetta var í boði á Íslandsmóti en þessi keppnisgrein hentar Liljari miklu betur. Mér finnst líka bara mikið skemmtilegra að fara hratt.“

Önnur varð Sigurbjörg Helgadóttir á Aski frá Miðkoti og í þriðja Sigurður Dagur Eyjólfsson á Flugari frá Morastöðum.

Hægt er að horfa á mótið í beinni á Alendis.is eða inn á Facebooksíðu mótsins

 

Niðurstöður – Unglingaflokkur – A úrslit
1 Snæfríður Ásta Jónasdóttir / Liljar frá Varmalandi 8,71
2 Sigurbjörg Helgadóttir / Askur frá Miðkoti 8,66
3 Sigurður Dagur Eyjólfsson / Flugar frá Morastöðum 8,54
4 Kristín Eir Hauksdóttir Holake / Ísar frá Skáney 8,52
5 Steinunn Lilja Guðnadóttir / Heppni frá Þúfu í Landeyjum 8,40
6 Kristín Karlsdóttir / Smyrill frá Vorsabæ II 8,39
7 Camilla Dís Ívarsd. Sampsted / Steinn frá Runnum 8,38
8 Sveinfríður Ólafsdóttir / Þruma frá Akureyri 8,27

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link