Þá fer að styttast í eitt skemmtilegasta mót ársins, Metamót Andvara 2012. Mótið fer fram á keppnissvæði Andvara að Kjóavöllum, dagana 31. ágúst – 2. september. Metamótið er einstakt því þar er gæðingakeppni riðin á beinni braut og „allt leyfilegt“. Skeið og töltkeppni eru þó lögleg og með hefðbundnu sniði. Þar sem einungis verður boðið uppá opinn flokk í gæðingakeppninni verður í ár sú nýbreytni, að auk hefðbundinna A og B úrslita verða einnig riðin C úrslit, sem verður vonandi til þess að virkja metnaðarfulla áhugamenn til að skrá sig til leiks. Nýtt á dagskrá Metamóts er svokallað „RÖKKURBROKK“. þá er keppt í fljúgandi 100 m kappreiðabrokki með tímatöku. Ábyggilegt er að þetta verður þrælskemmtileg keppni og góð upphitun fyrir áhorfendur fyrir ljósaskeiðið strax á eftir. Metamótsnefnd hvetur knapa, jafnt áhugamenn sem meistara, til að freista gæfunnar og reyna þessa bráðskemmtilegu keppnisgrein.
Eftirfarandi dagskrárdrög eru birt með fyrirvara um breytingar eftir að skráningu lýkur.
Föstudagur
14:00 Dagskrá hefst
– B-flokkur (bein braut) – opinn flokkur
– Matur
– B-flokkur (bein braut) – opinn flokkur
– Rökkurbrokk (forkeppni)
– Ljósaskeið (forkeppni)
Laugardagur
08:00 Dagskrá hefst
– A-flokkur (bein braut) –opinn flokkur
– Skeið 150m
– Skeið 250m
– Tölt T3 (hringvöllur) – opinn flokkur
– C-Úrslit B-fl.
– C-Úrslit A-fl.
– B-úrslit tölt
– Matur
– B-úrslit B-fl.
– B-Úrslit A-fl.
– Rökkurbrokk
– Ljósaskeið
Kvöldvaka, uppboð
Sunnudagur
13:00 Dagskrá hefst
– 250m skeið
– 150m skeið
– A-úrslit tölt
– Forstjóratölt
– A-úrslit B-fl.
– A-úrslit A-fl.
Eftirfarandi breytingar eru á fyrirkomulagi mótsins í ár:
Einungis verður í boði opinn flokkur í öllum greinum. Áhugamenn eru þó eindregið hvattir til að láta það ekki draga úr sér að taka þátt, enda ekki á hverjum degi sem menn fá tækifæri til að etja kappi við meistarana. A, B og C úrslit í gæðingakeppninni. Sem fyrr verða auk þess sæti í A-úrslitum í A og B flokki seld á uppboði á skemmtikvöldinu. Aldurstakmark í öllum greinum er 18 ára (á árinu). Hápunktur Metamótsins er hið margrómaða 100 metra skeið í flóðlýsingu sem hefst kl. 22 á laugardagskvöldinu – engar breytingar á því.
Sem fyrr verða peningaverðlaun veitt í efstu sætum í öllum skeiðgreinum. „Rökkurbrokk“ verður haldin til skemmtunar og upphitunar í rökkrinu fyrir ljósaskeiðið. Þá er keppt í fljúgandi 100 m kappreiðabrokki með tímatöku – við reiknum með Íslandsmeti ! Forstjóratöltið verður auðvitað á sínum stað, nema í ár verður riðið á beinni braut og sýnt hægt tölt og fegurðartölt. Áhugasamir tilkynni þátttöku:
[email protected]
Skráningargjald er 4.500 kr í öllum greinum og 3.000 kr í Rökkurbrokki. Skráning í alla flokka fer fram á www.skraning.is. Gefa þarf upp IS nr. hests, kennitölu og síma knapa við skráningu. Skráningargjald greiðist einnig við skráningu. Ekki verður tekið við skráningum í síma. Lokað verður fyrir skráningu þriðjudaginn 28. ágúst kl. 22 stundvíslega.