Mette, Artemisia og Þórdís Anna með námskeið í Torfunesi

  • 26. október 2012
  • Fréttir
Mette, Artemisia og Þórdís Anna með námskeið í Torfunesi

Núna í nóvember og desember ætla þau í Torfunesi að bjóða upp á nokkur námskeið með góðum kennurum.

Helgarnar 2-4 og 23-25 nóvember sem og 14-16 desember ætlar Þórdís Anna Gylfadóttir kennari á Hólum að vera með námskeið hjá okkur. Hún mun bjóða upp á reiðnámskeið en einnig knapamerki 1 og 2 fyrir þá sem vilja. Mette Mannseth kennari á Hólum mun vera hjá okkur 1-2 desember. Síðan að síðustu mun Artemisia Bertus vera með námskeið hjá okkur 7-9 desember og verður einnig hægt að fá einkatíma hjá henni ef áhugi er fyrir því.
 
Endilega að nýta sér þessi námskeið hjá þessum frábæru kennurum. Frekari upplýsingar er hægt að fá á [email protected] eða hjá Baldvin í Torfunesi í s: 863-9222

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link