Mette með sýnikennslu í Torfunesi
Næstkomandi laugardag, þann 1. desember mun, Mette Mannseth vera með sýnikennslu í Torfunesi í Þingeyjarsveit.
„Þemað á sýnikennslunni mun vera beisli, beislismél, hnakkar og annar búnaður. Tekið verður sérstaklega fyrir virkni mismunandi méla. Velkomið er að koma með búnað með sér og fá álit og umræður. Sýnikennslan mun hefjast kl. 15 og er aðgangseyrir 1000 kr.“ segir í tilkynningu frá Torfunesi.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV