Miðbæjarreiðin er í dag
Landssamband hestamannafélaga og Hestamannafélagið Fákur í Reykjavík efna til miðbæjarreiðar í tilefni af 100 ára afmæli Fáks í dag 23. apríl
Lagt verður af stað frá BSÍ kl. 13.00, þaðan riðið að Hallgrímskirkju, svo að Austurvelli og um Hljómskálagarðinn aftur að BSÍ. Frábært tækifæri fyrir alla fjölskylduna að koma saman og ríða um miðbæinn í hópi hestamanna.
Hvetjum við hestamenn til að fjölmenna með fákana sína taka þátt í þessum skemmtilega viðburði.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing