Miðsumarssýning
Að öllum kostum virtum og að höfðu samráði við ýmsa aðila í hópi tamningamanna hefur undirritaður ákveðið að færa fyrirhugaða miðsumarssýningu frá Selfossi að Gaddstaðaflötum við Hellu. Mál standa þannig að brautin á Selfossi virðist þola miður þá úrkomutíð sem staðið hefur svo að segja sumarlangt – og sér hvergi fyrir endann á. Brautin á Hellu er, sem stendur, líklegri til að þola það mikla álag sem fylgir jafn gleðilega stórri og viðamikilli kynbótasýningu.
Hollaröð á Gaddstaðaflötum verður birt á netmiðlum hestamanna í dag en dæmt verður með tveimur dómarahópum mánudag til miðvikudags (22.-24. júlí) og tvískipt yfirlitssýning fyrirhuguð á fimmtudegi og föstudegi (25.-26. júlí).
Með von um að þessi breyting komi nógu snemma fram til að knapar og umráðamenn hrossa geti gert viðeigandi ráðstafanir. Frekari upplýsingar, ef óskað er, veitir undirritaður í síma: 862-9322 eða [email protected].
Virðingarfyllst
Pétur Halldórsson, sýningarstjóri miðsumarsýn.