Mikið að gera hjá FT-
Í nýútkomnu fréttabréfi FT er kynnt dagskráin framundan. Þar ber fyrst að telja aðalfund félagsins sem verður haldinn 03.des næstkomandi…
í veitingastaðnum Kænunni í Hafnarfirði.
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa mun Víkingur Gunnarsson halda kynningu breyttu fyrirkomulagi námsins við hrossaræktarbraut Hólaskóla. Eldri sem og tilvonandi nemendur skólans eru hvattir til þess að mæta. Einnig er verknámskennarar hvattir til þess að koma og kynna sér fyrirkomulagið.
Afmælishátíð FT er í undirbúningi en hún verður haldin í febrúar í Reiðhöllinni í Víðidal.
Drög hafa verið gerð að vetrardagskrá félagsins en meðal þess sem boðið verður uppá er sýnikennsla með Sigurbirni Bárðarsyni í desember og Anton Níelssyni í janúar. Þessir viðburðir verða auglýstir síðar er nær dregur. Félagið heldur úti vefnum www.tamningamenn.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH