Mikið að gerast í reiðvegaframkvæmdum
Verktakinn er að ljúka við reiðveginn upp gjánna við Almannadal. Það á bara eftir að hefla yfir hann og þá er hann klár 🙂 Â Einnig er búið er að hækka veginn neðst í hvilftinni þannig að knapar hafi betra útsýni á akveginn. Þar var sett ræsi undir reiðveginn veginn, því þarna kom alltaf stór pollur á veturna sem hindraði för reiðmanna.
Verktakinn er einnig byrjaður á stubbnum frá undirgöngum við Almannadal og að áningargerði í Rauðhólum og klárast sá hluti fljótlega.
Í september var borið oní, heflaður og valtaður reiðvegurinn frá Bugðu og að Heiðmerkurvegi. Svo er líka búið að bera ofan í og hefla veginn frá undirgöngum úr Víðidal meðfram Breiðholtsbraut alveg að gömlu brúnni við Skyggni.
Reiðveganefnd í samstarfi við Reykjavíkurborg hefur staðið að þessum framkvæmdum og eiga allir hrós skilið fyrir því þetta bætir okkar útreiðarleiðir mikið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH