Landsmót 2024 Mikil spenna í b úrslitunum í a flokki

  • 7. júlí 2022
  • Fréttir
Niðurstöður úr b úrslitum í a flokki

Það var mikil spenna í b úrslitunum í a flokknum. Eftir tölt og brokk var efstur Hervar frá Innri-Skeljabrekku. Kolskeggur frá Kjarnholtum I nældi þó efsta sætinu af honum eftir skeiðið en knapi á Kolskeggi er Sigurður Sigurðarson. Þeir Kolskeggur og Sigurður mæta því í a úrslitin á laugardaginn.

B úrslit – A flokkur – Niðurstöður
Sæti Hross Knapi Aðildarfélag eiganda Einkunn

8 Kolskeggur frá Kjarnholtum I Sigurður Sigurðarson  Sprettur 8,83
9 Hervar frá Innri-Skeljabrekku Gústaf Ásgeir Hinriksson Borgfirðingur 8,76
10 Kjuði frá Dýrfinnustöðum Björg Ingólfsdóttir Skagfirðingur 8,75
11 Rosi frá Berglandi I Guðmar Freyr Magnússon  Skagfirðingur 8,72
12 Sægrímur frá Bergi Viðar Ingólfsson Snæfellingur 8,70
13 Glampi frá Kjarrhólum Daníel Jónsson  Sörli 8,67
14 Hlekkur frá Saurbæ Pétur Örn Sveinsson  Skagfirðingur 8,61
15 Viljar frá Auðsholtshjáleigu Þórdís Erla Gunnarsdóttir Fákur 7,52

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link