Mikil stemning fyrir Ræktun á morgun
Það stefnir í flott laugardagskvöld í HorseDay höllinni Ingólfshvoli. Árni Björn Pálsson mætir og leikur listir sínar. Ræktunarhópar frá flottum búum, til að mynda Þjórsárbakka og Fákshólum. Afkvæmastóðhestar og fleira og fleira.
Húsið opnar klukkan 18:00 og boðið verður upp á frábærar veitingar. Hvetjum fólk til að mæta snemma og tryggja sér góð sæti.
Miðasala er í öllum helstu hestabúðum og einnig í anddyri Horseday hallarinnar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts