„Mikil stemning og alltaf mikið af fólki“
Viðtal við Rósu Birnu Þorvaldsdóttur eftir sigur í fjórgangi í Uppsveitadeildinni
Rósa Birna Þorvaldsdóttir stóð uppi sem sigurvegari þegar keppt var í fjórgangi í Uppsveitadeildinni.
Hestur Rósu er Frár frá Sandhól, en hann er úr ræktun foreldra Rósu, þeirra Þorvaldar H Kolbeins og Margrétar H Vilhjálmsdóttur.
Frár er átta vetra gamall undan Loka frá Selfossi og Freyju frá Hafnarfirði. Rósa hefur séð um tamningu og þjálfun á honum en hún sýndi hann í kynbótadómi þar sem hann hlaut 8,41 í aðaleinkunn.
Í viðtali við Eiðfaxa segir Rósa frá því hversu mikilvæg Uppsveitadeildin er fyrir samfélagið í heild sinni og ýmislegt fleira.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum