Minning um dráttarhesta
Ingimar Sveinsson man tímana tvenna . Þegar hann ólst upp á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar voru dráttarhestar notaðir bæði fyrir sleðum, kerrum sem og í heyskap.
„Fjórir til fimm hestar voru notaðir allt árið og var síst farið verr með þá en reiðhestana. Þeir voru teknir á sama tíma og kýrnar á haustin, kappfóðraðir á veturna og beitt á sumrin. Alltaf var passað vel upp á að aktygi særðu þá ekki. Staða þeirra var því alls ekki verri en reiðhestanna, þeir höfðu bara annað hlutverk. Kannski var það ekki algilt alls staðar að svo vel hafi verið búið að dráttarhestunum, en á mínu heimili einkenndist viðhorf til dráttarhesta af virðingu,“ segir Ingimar m.a. í viðtali í jólablaði Eiðfaxa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH