Minnum á sýnikennslu Guðmars í Gusti!
Guðmar Þór Pétursson reiðkennari verður með sýnikennslu í reiðhöll Gusts í Glaðheimum, laugardaginn 29. janúar frá kl. 17-19.
Þeir sem sem misstu af sýnikennslu Guðmars í Herði fyrr í mánuðinum fá nú tækifæri til að sjá og kynnast athyglisverðum þjálfunaraðferðum hans.
Guðmar Þór hefur, eins og margir þekkja, rekið tamningarstöð í Bandaríkjunum til margra ára. Þar hefur hann fengist mikið við kennslu, þjálfun og tamningar á íslenskum hestum, auk þess að kynna sér margskonar reiðmennsku- og þjálfunaraðferðir. Hann á einnig að baki farsælan feril í keppni og þjálfun hérlendis.
Í sýnikennslunni mun Guðmar fjalla um skipulag þjálfunar í upphafi árs sem og áframhaldandi þjálfun.
Einnig mun hann fjalla um líkamsbeitingu og form, í tengslum við grein hans sem birtist í 7.tölublaði Eiðfaxa 2010 um þjálfun á stöngum. Auk þess mun Guðmar miðla því sem honum er helst hugleikið í reiðmennsku þessa dagana.
Aðgangseyrir er aðeins kr. 1.000 og hefst sýningin klukkan 17.00 á laugardaginn, tilvalið að kíkja við í Gusti eftir útreiðar dagsins. Allir velkomnir!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH