Mótadagar ársins 2017
Nú þegar hafa nokkrir mótshaldarar skilað af sér þeim dagsetningum sem þeir áætla í sín mót á keppnisárinu 2017. Ljóst er að á þeim lista að mikið er um innanhúsmnót og keppnisdeildir í reiðhöllum víða um land.
Fyrsta mót ársins er fyrirhugað nýársmót Léttis. Fyrsta mótaröðin hefur svo göngu sína á Hellu þegar keppt er í fjórgang í Suðurlandsdeildinni 31.janúar. Í febrúar, mars og apríl eru síðan fyrirhugaðir 63 dagar bæði í keppni og reiðhallarsýningum, þannig að hestaáhugamenn ættu að hafa nóga afþreyingu.
18.-21.maí er skráð WR íþróttamót Sleipnis og 8.-11.júní er svo íþróttamót Spretts og úrtaka fyrir HM. Íslandsmót fullorðinna þetta árið er haldið á Gaddstaðaflötum á Hellu 6.-9.júlí og íslandsmót yngri flokka á Hólum í Hjaltadal 13.-16.júlí.
Það lítur því út fyrir spennandi keppnisár á næsta ári.
Ljóst er að fleiri mótshaldarar eiga eftir að skila inn áætluðum dagsetningum um keppnisdaga.
Nánar má glöggva sig á mótadögum 2017 inn á Síðu LH.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson