Mótmæla harðlega hugmyndum um breytt innflutningslög á hundum

  • 13. apríl 2011
  • Fréttir
Mótmæla harðlega hugmyndum um breytt innflutningslög á hundum

Eftirfarandi tilkynning hefur borist frá Landssambandi hestamannfélaga, Félagi hrossabænda og Félagi Tamningamanna:

“Fyrir nokkru voru settar fram hugmyndir á Alþingi um að leyfa flutning á hundum til og frá Íslandi án þess að þeir þyrftu í einangrun en núverandi lög kveða á um einangrun til þess að fyrirbyggja smithættu á mjög alvarlegum sjúkdómum hingað til lands.

Af þessu tilefni vilja eftirtalin hagsmunarsamtök í hestamennsku mótmæla harðlega fram komnum hugmyndum þar sem þær geta haft óafturkræfar afleiðingar fyrir íslenska hrossastofninn og ófyrirséðan kostnað fyrir alla hesta- og hundeigendur í landinu.

Hestamenn fengu smjörþefinn af því á síðasta ári hversu alvarlegar afleiðingar það getur haft ef ekki er varlega farið í þessum efnum og þeim reglum fylgt sem í gildi eru í hvívetna. Því leggja hagsmunarsamtök í hestamennsku áherslu á að ekki verði neinar breytingar gerðar á því fyrirkomulagi sem í gildi eru um sópttvarnir nema með fullu samþykki færustu sérfræðinga á þessu sviði og í fullri sátt við alla hagsmunaraðila.

Landssamband hestamannafélaga
Félag hrossabænda
Félag tamningarmanna”

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link