Myndbönd af frumtamningaferli-
Nemendur á 2. ári hestafræðideildar háskólans á Hólum hafa í haust m.a. numið frumtamningar. Í öllum tamninga- og þjálfunarnámskeiðum í hestafræðideildinni er ætlast til að nemendur haldi dagbók um ferli tamningahrossa, þar sem nemendur rökstyðja aðferðir og lýsa framgangi hvers hests. Í haust hafa allnokkrir nemendur kosið að vinna dagbókina sína á myndbandsformi. Tveir hópar lögðu fram fimm stutt myndbönd þar sem farið var yfir verkefni um það bil einnar viku í senn.
Þessi fróðlegu myndbönd um ferli frumtamninga má nálgast hér á heimasíðu Hólaskóla hestamönnum bæði til gagns og gamans:
1. Unnið inni í stíu og í hringgerði. Trippið vanið við reiðtygi og teymingar.
2. Áframhaldandi vinna í hringgerði. Efling trausts og farið á bak.
3. Riðið á eftir aðstoðarmanni inni í reiðhöll og fleira.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum