Næsta mót í Blue Lagoon mótaröðinni

  • 15. mars 2024
  • Tilkynning

Næsta keppni í Blue Lagoon mótaröðinni verður haldin fimmtudaginn 21.mars nk. Keppni hefst kl.17:00 í Samskipahöllinni í Spretti. Mótið er opið öllum knöpum í yngri flokkum. Keppt verður í tölti og slaktaumatölti. Vegna þess hversu vinsæl BLUE LAGOON mótaröðin er orðin verðum við að grípa til fjöldatakmarkana í skráningu. Fyrir næsta ár munum við endurskoða umgjörð og skipulag mótanna til að mæta vaxandi eftirspurn.

Eftirtaldir flokkar verða í boði í tölti;
– Barnaflokkur (10-13ára):
T7 (minna keppnisvanir). Max 20 keppendur.
T3 (meira keppnisvanir). Max 30 keppendur.
– Unglingaflokkur (14-17ára): T3. Max 30 keppendur.
– Ungmennaflokkur (18-21árs): T3. Max 25 keppendur.

ATH! Ekki er leyfilegt að skrá í bæði T7 og T3 á þessu móti.

Eftirtaldir flokkar verða í boði í slaktaumatölti;
– Barnaflokkur: T4. Max 30 keppendur.
– Unglingaflokkur: T4. Max 30 keppendur.
– Ungmennaflokkur: T4. Max 25 keppendur.

6 efstu knapar fara í úrslit en það verða ekki riðin B-úrslit. Knapar í barna-, unglinga- og ungmennaflokki safna stigum í gegnum mótaröðina og verða veitt verðlaun fyrir stigahæstu knapana í hverjum flokki á síðasta mótinu.

Skráning er opin og fer fram á sportfengur.com.

Skráningu lýkur á miðnætti þriðjudaginn 19.mars.

ATH! Ekki er tekið við skráningum eftir að skráningarfresti lýkur.

Skráningargjöld eru 3500kr.

Ráslistar og dagskrá verður birt miðvikudaginn 20.mars hér á facebook síðu mótsins.

Veitingasala verður opin í veislusalnum.

Í boði verður æfingatími í allri Samskipahöllinni sunnudaginn 17.febrúar kl.18:00-20:00.

Vonumst til að sjá sem flesta í Samskipahöllinni fimmtudaginn 21.mars nk.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar