Námskeið fyrir þuli á mótum
Námskeiðið verður haldið í TM-reiðhöllinni í Víðidal sunnudaginn 24. apríl kl. 11-16. Kennari á námskeiðinu er Sigrún Sigurðardóttir en hún er ein af okkar reyndustu þulum. Boðið verður upp á tveggja tíma fyrirlestur í veislusal reiðhallarinnar og svo er verkleg kennsla í reiðhöllinni þar sem nemendur fá að stýra knöpum í reið.
LH hvetur hestamannafélög til að senda fulltrúa úr sínum röðum á námskeiðið og hvetur karla jafnt sem konur til að mæta.
Takmarkaður fjöldi, verð kr. 5000.
www.lhhestar.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH