Námskeið fyrir unga sýnendur

  • 26. janúar 2012
  • Fréttir
Námskeið fyrir unga sýnendur

Ungir sýnendur og þjálfarar hafa nú kost á að skrá sig á alþjóðlegt námskeið á vegum FEIF.

 
Námskeið á vegum FEIF, sambærilegt því sem haldið var í fyrra vor, verður einnig í boði í vor. Námskeiðið er ætlað ungu fólki sem þjálfar og sýnir kynbótahross á markvissan hátt en hefur auk þess áhuga á frekari menntun, þjálfun og skoðanaskiptum á þessu sviði.
 
Námskeiðið er ætlað fólki á aldrinum 18 – 26 ára.
 
Þema: Þjálfun og sýning kynbótahrossa.
• Fyrirlestrar fluttir af ræktendum, þjálfurum og dómurum. 
• Verklegt, sýning hrossa bæði fyrir sköpulag og hæfileika.
• Sameiginleg ferð á reiðhallarsýningu stóðhesta sunnanlands (aðgangseyrir ekki innifalinn í námskeiðsgjaldi).
 
Dagsetning: 5. – 8. apríl. Byrjar kl. 18:00 á fimmtudegi og endar um hádegisbil á sunnudegi.
Staðsetning: Skeiðvellir í Holta- og Landssveit.
 
Yfirferð umsókna og skráning er í höndum ræktunarleiðtoga hverrar FEIF þjóðar.
Hámarksfjöldi þátttakenda eru tveir frá hverju FEIF landi (er þó háð fjölda skráninga).
Síðasti skráningardagur: 13. febrúar.
 
Skráningargjald 50 evrur greiðist fyrir 28. febrúar.
Námskeiðsgjald fyrir gistingu og fæði 220 evrur, greiðist á staðnum.
 
Skráningar berist til Guðlaugs V. Antonssonar [email protected] sími 892-0619.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link