Námskeið í hófhirðu
Á þessu námskeiði munum við bæði æfa okkur á dauðum fótum og lifandi hestum. Nemendum er velkomið að taka eigin hross með og læra þannig betur á þarfir eigin hesta og hvernig á að meðhöndla þá sérstaklega. Frábærar reiðleiðir eru á svæðinu!
Til viðbótar við þetta námskeið mun Lousie fræða okkur betur um „Paddock Paradise“, skoða hvers kyns land hentar best og afhverju þetta fyrirkomulag getur verið lífgæðaaukning fyrir hesta, ekki síst þá sem hafa glímt við hófsperru.
Fyrir þig sem ert ekki að hugsa um járnalausan lífstíl, þá gæti námskeiðið einnig hentað þér ef þú:
- Vilt geta notið reiðtúra með hestinum sínum án þess að járna eða ert með hesta í lítilli þjálfun sem þú vilt geta farið í reiðtúr á af og til
- Ert með hest sem hefur fengið hófsperru, er með hófsperru eða er viðkvæmur fyrir því. Þú lærir bæði að hirða slíka hófa, færa þá til betri vegar og fræðist um lífstíl sem hentar betur slíkum hrossum og eykur lífsgæði
- Langar að læra að hirða hófa rétt eða æfa þig í að gera það betur, þó það sé ekki nema fyrir off-seasonið, svo þeir vaxi eðlilega og hestinum líði vel
- Lærir að þekkja einkenni sterkra og heilbrigðra hófa og sömuleiðis einkenni hófa sem glíma við vandamál. Farið er vel yfir hófsperru, hvernig hún myndast, áhrif þess á hófinn, hestinn sjálfann og þróun hófsins í kjölfarið.
- Vilt vita meira um „Paddock Paradise“, sjá dæmi um slíkt og læra um möguleika fyrir íslenskar aðstæður því tengt.
Gisting í boði á svæðinu. Fyrirspurnir og skráningar á námskeiðið berist á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum